Áratuga reynsla

Í þessum bransa skipta smáatriðin máli. Skali Merking er með glænýjan skurðplotter sem er gríðarlega nákvæmur og getur skorið út allar filmur og kartonpappír.

Fyrsta flokks aðstaða

Við höfum unnið við prentsmíði og skiltagerð í um 40 ár, mikil þekking og reynsla hefur myndast á þeim tíma og þekkjum þess vegna fagið út og inn. Skali merking var stofnað árið 2017. Hjá okkur höfum við komið upp fyrsta flokks aðstöðu og verkstæði með einum best skurðvélunum.

Efnisval skiptir okkur miklu máli og veljum við aðeins gæðaefni sem þolir íslenskar aðstæður. Við veitum einnig sérfræðiráðgjöf við allt sem tengist uppsetningu á filmum, skiltagerð og bílamerkingum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Tökum líka að okkurað hanna útlit fyrir útidyrahurðir, eldhúsglugga, skreytingar á veggi og allt þar á milli.

Fáðu tilboð í þitt verkefni

Vilt þú fá frítt verðtilboð í þitt verkefni? Hafðu samband  til að fá tilboð sem er sérsniðið að þínum þörfum án allra skuldbindinga.

Spurt & svarað

Ef þú hefur fleiri spurningar eða þarft frekari skýringar á einhverri þjónustu okkar, ekki hika við að hafa samband við til að fá ráðgjöf eða tilboð sem er sérsniðið að þínum þörfum

Hvernig efni notað þið?

Við notum aðeins hágæða, endingargott efni til að tryggja að filmurna, límmiðar eða skilti endist lengi.

Veitið þið hönnunarráðgjöf?

Já, við bjóðum upp á ráðgjöf um hönnun og efnisval.

Hvernig get ég fengið tilboð?

Þú getur haft samband við okkur hér, í gegnum síma eða tölvupóst og við getum rætt um verkefnið. Við gefum þér síðan tilboð í verkið.

Hvar eru þið staðsettir?

Við erum með verkstæði í Hafnarfirði og þjónustum viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi sveitum.